Confirm domain ownership
top of page
Vellíðan Við Vinnu (21).png
- Bókaðu viðtal í dag í dagatalinu hér á síðunni -

6 vikna einkaþjálfun - LÍF OG HEILSA -

Viðfangsefni þjálfunarinnar eru eftirfarandi:
• Rétt líkamsbeiting
Útskrifast í að kunna sjálf/ur að stilla stólinn og borðið.
Fjölbreytiliekinn er lykilatriðið.
Markmiðið gæti verið að: draga úr verkjum, stefna að því að vera verkjalaus eða fyrirbyggja verki: með fjölbreyttu æfingavali og nuddtækjum.

• Hreyfing
Farið í gegnum liðkandi æfingar, þol, styrk og teygjur.
Markmið gæti verið að auka úthald, þol, styrk, liðleika og ákefð.
Videomynbönd og Strava

• Næring
Tekið til í mataræðinu, fara úr tilviljunarkenndu mataræði í meiri aðhald og festu.
Markmið gæti verið að auka vatnsdrykkju, fara meira í hreint mataræði, auka grænmetisneyslu, kynnast föstu/hreinsun & draga úr sykurneyslu og gosdrykkju, draga úr unnu mataræði og nasli á milli mála.

• Svefn
Svefnvenjur. Skoða hvað gæti verið að trufla svefninn. Hvernig getum við hámarka gæði svefns.
Markmið gæti verið að skorða sig rétt til að draga úr verkjum, draga úr stressi/áhyggjum sem geta verið að hamla svefn, fara fyrr í háttinn.

Streitulosun
Í amstri dagsins, hvað er það sem gæti verið að trufla. Tímaleysi, of margir boltar á lofti, vinna fram á kvöld.
Markmið gætu verið að auka núvitund, æfa öndun og kunna að setja sér mörk.

 

Aðalmarkmið einkaþjálfunarinnar er að verkja- og endurstilla líkamann, auka hreysti, auka kraft og þol, geisla af gleði og endurstilla lífsklukkuna ef með þarf. Allt þetta er gert undir handleiðslu sjúkraþjálfara.

Nuddtækin eru stór partur af þessari þjálfun.
Flestir finna fyrir einhverjum verkjum í stoðkerfinu, til að mynda vöðvabólgu, höfuðverk, sinafestumein, leiðni niður eftir handlegg eða fótlegg, mjóbaksverk eða fótaóeirð.
Nuddtaska Lífs & heilsu er innifalin í verði námskeiðsins.

NUDDVÖRURNAR ERU SÉRVALDAR Í TÖSKUNA AF SJÚKRAÞJÁLFARA.
- AUKA BLÓÐFLÆÐI TIL LIÐA OG VEFJA.
- AUKA LOSUN ENDORFÍNA Í LÍKAMANUM (VELLÍÐUNARHORMÓNIÐ).
- AUKA LÍKUR Á VERKJALOSUN OG VÖÐVASLÖKUN.
- ERU LÉTTAR Í NOTKUN OG EINFALT AÐ GRÍPA MEÐ SÉR HVERT SEM ER.
- Á ÞESSU NÁMSKEIÐI MUNT ÞÚ LÆRA AÐ NUDDA ALLAN KROPPINN FRÁ TOPPI OG NIÐUR Í TÆR.

INNIHALD NUDDTÖSKU:
NUDDBURSTI MEÐ GÓÐU GRIPI
3D ANDLISNUDDARI
3D MINI ANDLITSNUDDARI
NUDD "HANDKLÆÐI" MEÐ NUDDKÚLUM
ÞRÝSTIPUNKTAHRINGUR
NUDDHANSKI MEÐ NUDDKÚLUM
NUDDBOLTI
ÞRÝSTIPUNKTADÝNA
ÞRÝSTIPUNKTAKODDI

Aðgangur er að fjölbreyttum kennslumyndböndum:
Æfingamyndband:
- Nuddtækin
- Styrkjandi æfingar
- Liðkandi æfingar
- Hléæfingar

- Öndun og núvitund
Kennslumyndband: 
- Fyrirbyggjum verki
- Stillum borðið
- Stillum rafdrifið borð

- Stillum skrifborðsstólinn

- Tveir skjáir

- Allir smáu hlutirnir

- Koddar og svefnstaða

Stutt myndbönd:
- Nuddhárburstinn
- Andlitsnuddtækin

- Nuddhandklæðið

- Nuddhanskinn

- Nuddboltinn

- Þrýstipunktahringurinn

- Þrýstipunktakoddinn og dýnan

Kennsluefni:

- Hreint mataræði

- Streitustjórnun

- Rétt líkamsbeiting

 

LÁTTU ÞÉR LÍÐA VEL – ÞÚ ÁTT ÞAÐ SKILIÐ

Nuddtaska.JPG

Vinnuheilsu býður upp á árangursríka einkaþjálfun - LÍF OG HEILSA - sem fram fer í gegnum samskiptaforritið ZOOM.

Ásgerður Guðmundsdóttir sjúkraþjálfari og íþróttakennari verður þinn einkaþjálfari. Hún er með yfir 20 ára reynslu í að þjálfa fólk, bæði í réttri líkamsbeitingu, að kenna fólki að stilla starfstöðina sína og að koma fólki í gott form.

Námskeiðið er 6 vikna einkaþjálfun þar sem þú hittir þjálfara þinn einu sinni í viku. Bókaðu ókeypis Zoom viðtal í dagatalinu hér á síðunni til að komast að því hvort einkaþjálfun LÍF OG HEILSA henti þér.

 

Um er að ræða:
• 6 vikna námskeið
• Vikuleg 55 mín live Zoom  55 einkaviðtöl
• Email samskipti og messenger samskipti
• Strava

• Persónuleg hvatning sniðin að þínum þörfum

4 vikna námskeiði var að ljúka þar sem um 100 manns tóku þátt í hópþjálfun á Zoom og í lokuðum hópi á Facebook

HULDA STEFÁNSDÓTTIRFjármál og rekstur, Bókhald VSÓ

Það sem mér finnst að námskeiðið hafi gefið mér er að það hefur ýtt mér út í meiri hreyfingu sem hentar mér og ég á von að taka meiri áskorun varðandi hreyfingu í framhaldi. Svefninn hefur aukist hjá mér þar sem ég fékk góða útskýringu á svefnmunstri og hvað ég þarf mikinn svefn til að vera úthvíld að morgni. Mjög gott að láta taka út vinnuaðstöðuna mína og fá myndrænar hléæfingar til að framkvæma við skrifborðið.

EYGLÓ HRÖNN ÆGISDÓTTIR
Launasérfræðingur hjá Alcoa Fjarðaáls á Reyðarfirði

Ásgerður er svo dásamleg og hvetjandi. Maður fyllist jákvæðri orku og fer af stað í hreyfingu og líður vel með það. Fræðslan hennar um svefn og stillingu á skrifborðum og stólum ætti að vera skyldunámskeið allra sem vinna fyrir framan tölvu allan daginn. Ég mæli 100% með námskeiðinu.

MARY BJÖRK ÞORSTEINSDÓTTIR
Móttökufulltrúi hjá Hugverk

Ég mæli með námskeiði hjá Ásgerði fyrir alla sem vilja koma allsherjar skikki á heilsuna. Hún er með heildarpakkann varðandi mikilvægi samspils næringar, svefns og hreyfingar.
Eins gefur hún okkur flottar leiðbeiningar varðandi teygjur og æfingar til að fyrirbyggja verki og meiðsli.

KRISTÍN GUNNARSDÓTTIR

Sérkennari og íþróttakennari í Setrinu, Sérdeild Suðurlands Sunnulækjarskóla

Ásgerður hefur mikla og víðtæka reynslu sem sjúkraþjálfari og íþróttakennari auk þess að vinna í teymi fagaðila. Hún er mjög hvetjandi og einstaklega þægileg í viðmóti. Ég mæli eindregið með námskeiði með Ásgerði sem er vel skipulagt og tekur fyrir mikilvægi t.d. hreyfingar, hvíldar, mataræðis og andlegrar heilsu og hvernig þessir þættir haldast í hendur. Hún kemur frá sér ógrynni af fræðslu á ótrúlega stuttum tíma og á aðgengilegan hátt. 

bottom of page