Verum dugleg að passa vel upp á okkur og hvert annað í desember mánuði!
Af hveju? jú þessi mánuður er gjarnan sá sem veldur mikilli streitu vegna álags sem tengist vinnunni, heimilinu, jólainnkaupum, hraðtestum/samkomum, umferðarhnútum, biðröðum, tímaleysi, svefnleysi, óreglu á mataræði og svo framvegis.
Lærum að hjúpa okkur; draga andann niður í kviðarhol, neita okkur um of mikil sætindi, hreyfum okkur með því að gera hléæfingar í vinnunni og taka 5-10 mín göngutúra í hádeginu sem dæmi. Slökum líka á, það má!
Comments