Skráðu þig inn á Facebook síðuna "Burt með vöðvabólguna"
Það má m.a. hlusta á ókeypis fyrirlestur um rétta líkamsbeitingu og skoða góð innslög um heilsutengd máefni með það í huga að fyrirbyggja stoðverki tengt tölvuvinnu. Meðfylgjandi myndband er kynning á fyrirlestrinum sem hadlin var inn á síðunni þann 12.1.22.
Hefur þú verið með meiri vöðvabólgu en vanalega síðan að covid skall á?
Hefur þú þurft að skipta á milli þess að vinna í tölvunni heima og í vinnunni?
Ég get sjálf svarað báðum þessum spurningum játandi.
Í fyrirlestrinum mun fjalla um stillingar á heimavinnustöð, hvernig má koma í veg fyrir vöðvabólgu og aðra stoðverki, fara í gegnum æfingar og teygjur og svo að sjálfsögðu fer ég yfir hvað ykkur stendur til boða í framhaldinu af fræðslunni.
Þú mátt gjarnan láta samferða- og samstarfsfólk þitt vita af Facebooksíðunni með því að senda linkinn https://www.facebook.com/groups/588007365844859
Það hafa allir gott af því að rifja upp hvernig má stilla starfsstöðina sína, ég tala nú ekki um ef við erum að vinna með tvær starfsstöðvar, eina á vinnustaðnum og hina heima. Það eru nefnilega litlu hlutirnir sem skipta gríðarlega miklu máli þegar uppi stendur!
Þeir sem skrá sig, verður hleypt inn í Facebook hópinn og þar má nú þegar finna fræðslu með því að ýta á hnapp sem heitir GUIDE en ég kalla hnapinn Bókasafnið, því þar finnur þú alla þá fræðslu sem ég set inn og auðvelt er fyrir þátttalendur að nálgast á einum stað.
Þetta efni er komið:
10 góðar teygjuæfingar
Hugmyndir að æfingum með nuddbolta
Fræðsla um slökun og svefnstellingar
Uppskrift af grænn heilsudrykkur
Fræðsla um sitjandi stöðu – fartölvan
Test – rétt líkamsbeiting
Fræðsla um Þrýstipunkta dýna og –koddi
Með reglulegu millibili er sett inn meiri fræsðla, svo nú er mál að fylgjast með :)
Góðar stundir og kærar kveðjur, Ásgerður Guðmundsdóttir sjúkraþjálfari
Commentaires