Confirm domain ownership
top of page
Fashion Beauty Lifestyle YouTube Channel

6 vikna námskeið - LÍF OG HEILSA - Rétt líkamsbeiting

Námskeiðið Líf & heilsa hentar sérlega vel fólki sem er á vinnumarkaðnum og fólki sem er með vinnuaðstöðuna heima hjá sér.

Vinnuheilsu býður upp 6 vikna námskeiðið sem á sér upphafs- og lokadag.

Næsta námskeið verður auglýst fljótlega.


Líf og heilsa er starfstengt námskeið og er ætlað fólki sem vinnur skrifstofuvinnu.

Hópur þátttakenda hittist saman 1 sinni í viku á Zoom og nálgast fræðluefni á lokaðri Facebook síðu, á lokaðri síðu vinnuheilsa.is og á Appi Vinnuheilsu.

Í eitt skipti mætir kennari á vinnustað viðkomandi ef hann er á höfuðborgarsvæðinu til að yfirfara stillingar á starfsstöð.

 


 

Efnisyfirlit fræðslunnar:

  • Hvernig má stilla starfsstöðina frá a-ö

  • Rétt líkamsbeiting

  • Tímastjórnun; Flýtilyklar í Windows og Microsoft Office & Navision

  • Hléæfingar, hreyfing, næring, svefn

 

Fræðsluefnið rennur saman í tímunum. Markmiðið er að fólk kunni og sé meðvitað um mikilvægi þess að:

  • stilla stólinn sinn oftar en 1x á dag

  • vinni reglulega í standandi stöðu við rafdrifið borð

  • stjórni tíma sínum skynsamlega með tilliti til allra aðgerða

  • auka framleiðni og fyrirbyggja fjarveru frá vinnu

 

Kennari námskeiðsins: 
Ásgerður Guðmundsdóttir sjúkraþjálfari og íþróttakennari sér um þetta námskeið. Hún er með yfir 20 ára reynslu í að þjálfa fólk, bæði í réttri líkamsbeitingu, að kenna fólki að stilla starfstöðina sína og að koma fólki í gott form.

Hagnýtar upplýsingar:

  • Námskeiðið fer fram á lokaðri Facebook síðu og á samskiptamiðli Zoom

  • Um leið og þú skráir þig færðu email með frekar upplýsingum

  • Til að hafa beint samband strax sendu email á asgerdur@vinnuheilsa.is 

Viðfangsefni þjálfunarinnar eru eftirfarandi:
• Rétt líkamsbeiting
Útskrifast í að kunna sjálf/ur að stilla stólinn og borðið.
Fjölbreytiliekinn er lykilatriðið.
Markmiðið gæti verið að: draga úr verkjum, stefna að því að vera verkjalaus eða fyrirbyggja verki: með fjölbreyttu æfingavali og nuddtækjum.

• Hreyfing
Farið í gegnum liðkandi æfingar, þol, styrk og teygjur.
Markmið gæti verið að auka úthald, þol, styrk, liðleika og ákefð.
Videomynbönd og Strava

• Næring
Tekið til í mataræðinu, fara úr tilviljunarkenndu mataræði í meiri aðhald og festu.
Markmið gæti verið að auka vatnsdrykkju, fara meira í hreint mataræði, auka grænmetisneyslu, kynnast föstu/hreinsun & draga úr sykurneyslu og gosdrykkju, draga úr unnu mataræði og nasli á milli mála.

• Svefn
Svefnvenjur. Skoða hvað gæti verið að trufla svefninn. Hvernig getum við hámarka gæði svefns.
Markmið gæti verið að skorða sig rétt til að draga úr verkjum, draga úr stressi/áhyggjum sem geta verið að hamla svefn, fara fyrr í háttinn.

Streitulosun
Í amstri dagsins, hvað er það sem gæti verið að trufla. Tímaleysi, of margir boltar á lofti, vinna fram á kvöld.
Markmið gætu verið að auka núvitund, æfa öndun og kunna að setja sér mörk.

 

Hvað getur maður gert sjálfur
Flestir finna fyrir einhverjum verkjum í stoðkerfinu, til að mynda vöðvabólgu, höfuðverk, sinafestumein, leiðni niður eftir handlegg eða fótlegg, mjóbaksverk eða fótaóeirð.
Nuddtæki

- auka blóðfæði til liða og vefja.
- auka losun endorfína í líkamanum (vellíðunarhormónið).
- auka líkur á verkjalosun og vöðvaslökun. 
- eru létt í notkun og einfalt að grípa með sér hvert sem er. 

Nuddbursti með góðu gripi

3D andlitsnuddari
3D mini andlitsnuddari
Nudd "handklæði" með nuddkúlum
Þrýstipunktahringur
Nuddhanski með nuddkúlum
Nuddbolti
Þrýstipunktadýna
Þrýstipunktakoddi

Aðgangur er að fjölbreyttum kennslumyndböndum:
Æfingamyndband:
- Nuddtækin
- Styrkjandi æfingar
- Liðkandi æfingar
- Hléæfingar

- Öndun og núvitund
Kennslumyndband: 
- Fyrirbyggjum verki
- Stillum borðið
- Stillum rafdrifið borð

- Stillum skrifborðsstólinn

- Tveir skjáir

- Allir smáu hlutirnir

- Koddar og svefnstaða

Stutt myndbönd:
- Nuddhárburstinn
- Andlitsnuddtækin

- Nuddhandklæðið

- Nuddhanskinn

- Nuddboltinn

- Þrýstipunktahringurinn

- Þrýstipunktakoddinn og dýnan

Kennsluefni:

- Hreint mataræði

- Detox

- Streitustjórnun

- Súrt og basískt

- Rétt líkamsbeiting

 

LÁTTU ÞÉR LÍÐA VEL – ÞÚ ÁTT ÞAÐ SKILIÐ

Nuddtaska.JPG

4 vikna námskeiði var að ljúka þar sem um 100 manns tóku þátt í hópþjálfun á Zoom og í lokuðum hópi á Facebook

HULDA STEFÁNSDÓTTIRFjármál og rekstur, Bókhald VSÓ

Það sem mér finnst að námskeiðið hafi gefið mér er að það hefur ýtt mér út í meiri hreyfingu sem hentar mér og ég á von að taka meiri áskorun varðandi hreyfingu í framhaldi. Svefninn hefur aukist hjá mér þar sem ég fékk góða útskýringu á svefnmunstri og hvað ég þarf mikinn svefn til að vera úthvíld að morgni. Mjög gott að láta taka út vinnuaðstöðuna mína og fá myndrænar hléæfingar til að framkvæma við skrifborðið.

EYGLÓ HRÖNN ÆGISDÓTTIR
Launasérfræðingur hjá Alcoa Fjarðaáls á Reyðarfirði

Ásgerður er svo dásamleg og hvetjandi. Maður fyllist jákvæðri orku og fer af stað í hreyfingu og líður vel með það. Fræðslan hennar um svefn og stillingu á skrifborðum og stólum ætti að vera skyldunámskeið allra sem vinna fyrir framan tölvu allan daginn. Ég mæli 100% með námskeiðinu.

MARY BJÖRK ÞORSTEINSDÓTTIR
Móttökufulltrúi hjá Hugverk

Ég mæli með námskeiði hjá Ásgerði fyrir alla sem vilja koma allsherjar skikki á heilsuna. Hún er með heildarpakkann varðandi mikilvægi samspils næringar, svefns og hreyfingar.
Eins gefur hún okkur flottar leiðbeiningar varðandi teygjur og æfingar til að fyrirbyggja verki og meiðsli.

KRISTÍN GUNNARSDÓTTIR

Sérkennari og íþróttakennari í Setrinu, Sérdeild Suðurlands Sunnulækjarskóla

Ásgerður hefur mikla og víðtæka reynslu sem sjúkraþjálfari og íþróttakennari auk þess að vinna í teymi fagaðila. Hún er mjög hvetjandi og einstaklega þægileg í viðmóti. Ég mæli eindregið með námskeiði með Ásgerði sem er vel skipulagt og tekur fyrir mikilvægi t.d. hreyfingar, hvíldar, mataræðis og andlegrar heilsu og hvernig þessir þættir haldast í hendur. Hún kemur frá sér ógrynni af fræðslu á ótrúlega stuttum tíma og á aðgengilegan hátt. 

bottom of page