Confirm domain ownership Vinnuheilsa | vinnuheilsa
top of page

Rétt líkamsbeiting og vellíðan við vinnu

Vinnuheilsa

PUBLIC

2023

Markmið Vinnuheilsu

​er að kenna fólki að tileinka sér rétta líkamsbeitingu og draga úr stoðkerfiskvillum.
Þannig má draga úr vinnutengdum eymslum
Auka framleiðni
Auka vinnugæði
Draga úr fjarvistum
Viðhalda góðri heilsu

Vinnuvistfræði

VINNUVISTFRÆÐI (Office Ergonomics) gengur út á samspil mannsins og umhverfisins þar sem markmiðið er að einstaklingnum líði sem best við iðju sína.

Skrifborð, stóll, tölvuskjáir, lyklaborð, tölvumús og lýsing; allt þetta þarf að meta þegar þú býrð til vinnuaðstöðu, hvort sem um ræðir á skrifstofunni eða heima fyrir.

Vinnuvernd & forvarnir

Þegar talað erum um VINNUVERND í þessu samhengi er átt við að allar aðgerðir skulu miðaðar að bættum aðbúnaði, hollustuháttum og öryggi á vinnuaðstöðu starfsmanns. 

Ávallt skal huga að FORVÖRNUM. Á bak við allar aðgerðir er haft að markmiði að fyrirbyggja eða draga úr hættu á atvinnutengdu heilsutjóni og stuðla að vellíðan starfsmanna.

Algengustu álagssjúkdómar í hreyfi- og stoðkerfi vegna tölvuvinnu

Álagseinkenni eru afleiðingar af líkamlegu og/eða andlegu álagi. ​

Með álagseinkennum er átt við óþægindi eða sársauka í vöðvum, sinum, og/eða liðum, sem leiðir til minnkaðrar hreyfigetu og lakari starfshæfni.

 

Algeng álagseinkenni eru vöðvabólga í herðum og hálsi​, frosin öxl​, tennisolnbogi​, carpal tunnel syndrome,​ mjóbaksverkir​, mjaðmaverkur​, fótaóeirð svo dæmi séu nefnd.

Rétt líkamsbeiting mikilvæg

Rétt líkamsbeiting er þegar vöðvarnir eru í innbyrðis jafnvægi og vöðvaspenna er tiltölulega lág.

 
Dæmi; bak er beint og axlir slakar, olnbogar eru sem næst síðu, hvort sem verið er að gera eitthvað standandi eða sitjandi. 

Please reload

bottom of page