Aftur í rútínu
- Vinnuheilsa

- Aug 12
- 1 min read
En þarf rútínan að vera alveg eins og áður?
Haustið er að ganga í garð og vinnudagurinn að færast aftur í fastari skorður eftir sumarfrí. Það getur verið góður tími til að staldra aðeins við og spyrja:
Hvernig vil ég að mér líði í vinnunni í vetur?
Við þurfum ekki alltaf stór heilsuátök eða róttækar breytingar.
Oft eru það litlu hlutirnir sem endurtaka sig alla daga sem skipta mestu máli.

Þrjár litlar breytingar fyrir haustið
1. Breyttu oftar um vinnustöðu
Líkaminn hefur gott af fjölbreytni.
Stattu reglulega upp, færðu þig til og forðastu að vera lengi í sömu stöðu.
2. Skoðaðu vinnustöðina upp á nýtt
Eru stóllinn, borðið, skjárinn, lyklaborðið og músin rétt stillt fyrir þig?
Einfaldar breytingar geta haft mikil áhrif á líðan yfir vinnudaginn.
3. Settu örhlé inn í daginn
Ein til tvær mínútur til að standa upp, ganga nokkur skref, hreyfa axlirnar eða líta frá skjánum geta brotið upp langvarandi kyrrstöðu og einhæft álag.
Góð vinnuheilsa er þó ekki eingöngu á ábyrgð einstaklingsins.
Vinnustaðurinn getur skapað aðstæður sem auðvelda starfsfólki að tileinka sér góðar venjur með góðu vinnuumhverfi, fræðslu og verklegri leiðsögn.
Kannski er því besta haustmarkmiðið einfaldlega:
Hvað get ég gert aðeins öðruvísi í vinnudeginum mínum sem hjálpar mér að líða betur þegar ég fer heim?
Byrjaðu á einu atriði.
Þegar það er orðið að vana má bæta því næsta við.
Góð vinnuheilsa byggist upp, einn vinnudag í einu.



Comments