top of page
Search

Áramótaheit 2026

Gleðilegt nýtt ár frá Vinnuheilsu

Starfsfólk Vinnuheilsu óskar landsmönnum öllum gleðilegs nýs árs og þökkum kærlega fyrir samstarfið á árinu sem er að baki.


Áramót eru góður tími til að staldra aðeins við og rifja upp einföld atriði sem skipta miklu máli fyrir heilsu og vellíðan í daglegu lífi og starfi.


Rétt líkamsbeiting snýst ekki um flóknar reglur, heldur um meðvitund í hreyfingu, vinnustellingum og daglegum venjum.


Með því að stilla vinnuaðstöðuna vel, breyta reglulega um stellingu, hreyfa sig í litlum skömmtum og hlusta á líkamann má draga úr stoðkerfisvanda og styðja við betri líðan til lengri tíma.


Við hlökkum til nýs árs með áframhaldandi áherslu á heilsueflingu, sjálfbæra líkamsbeitingu og vellíðan við vinnu.


Gleðilegt og heilsuríkt nýtt ár!

Vinnuheilsa

 
 
 

Comments


bottom of page