Góð ráð frá Vinnuheilsu yfir hátíðarnar 2025/2026
- Vinnuheilsa

- Dec 23, 2025
- 1 min read
✨ Dagarnir milli jóla og nýárs eru oft rólegir og svolítið öðruvísi en vanalega hvað varðar hreyfingu og mataræði.
💚 Hlustaðu á líkamann
Líkaminn sendir alltaf skilaboð. Taktu eftir þeim og sýndu þér umhyggju. Það er besta forvörnin.
💚 Breyttu um stellingu reglulega
Langar setustundir í sófanum eru notalegar, en líkaminn vill hreyfingu. Stattu upp reglulega, réttu úr þér og hreyfðu liðina.
💚 Innihreyfing
Nokkrar teygjur eða smá dans í stofunni getur gert gæfumuninn. Þetta þurfa ekki að vera langar æfingar.
💚 Útihreyfing
Stuttur göngutúr í hressilegri íslenskri veðráttu eykur blóðflæði, losar um stífleika og styður andlega vellíðan.
💚 Drekktu vel af vatni
Jólasteikur..... þurfum ekki að segja neitt meir. Vökvaskortur getur aukið þreytu og stífleika. Mundu að drekka reglulega vatn yfir hátíðarnar.
Vinnuheilsa óskar öllum gleðilegra jóla og góðrar líkamsbeitingar yfir hátíðarnar.




Comments