top of page
Search

Góð ráð fyrir óléttar konur við skrifstofustörf

Það getur verið áskorun að sitja löngum stundum við skrifborð á meðgöngu, en með nokkrum einföldum ráðum er hægt að minnka óþægindi og bæta vellíðan á vinnustaðnum.

Vinnuheilsa hvetur óléttar konur til að stilla stólinn sinn rétt og huga sérstaklega að þessum atriðum:


ree

1. Stilltu stólinn: bakið á að fá stuðning og fætur eiga að hvíla slakir á gólfi eða fótpúða. 2. Skjár í augnhæð: stilltu skjáinn í augnhæð, þannig minnkar þú spennu í hálsi og öxlum.

3. Skiptu um setustöðu: Hallaðu sætinu lítillega framávið, færðu fæturna lítilega í sundur (gott að nota langan fótskemil). Einnig er gott að nota standandi vinnustöðu inná milli. Þetta eykur blóðflæði, minnkar stirðleika og dregur úr þrýstingi á mjóbak og grind. 4. Stuðningstæki hjálpa: fótskemill, bakpúði, mjaðmabelti geta létt á líkamlegu álagi. 5. Hreyfðu þig reglulega: stattu upp á 30–45 mínútna fresti og teygðu úr þér.


Fimm góðar liðleikaæfingar á vinnutíma - sitjandi eða standandi


ree

1. Axlarhringir: Lyftu öxlum upp að eyrum, halltu í 3 sek, færðu þær aftur og niður. Endurtaktu 5 sinnum (x). --> Minnkar spennu í hálsi og öxlum.


2. Hliðarhalli: Hallaðu höfðinu varlega til hliðar þannig að eyra nálgist öxl. Haltu í 5 sekúndur og skiptu um hlið. Endurtaktu 5x --> Léttir á spennu í hnakka og hálsi.


3. Brjóstopnun: Settu hendur á mjaðmir. Ýttu bringu mjúklega fram og dragðu herðablöð saman og olnboga aftur. Slaka. Endurtaktu 5x. --> Opnar brjóstkassa og bætir öndun.


4. Mjúkur mjaðmahreyfing: Hreyfðu mjaðmirnar í litlum hringjum, fyrst í aðra átt 5x , svo 5x í hina áttina. --> Losar um spennu í mjóbaki og grind.

5. Öndunarteygja með handleggjalyftu:

Andaðu djúpt inn, lyftu handleggjum upp fyrir höfuð, teygðu þig mjúklega upp.

Andaðu út og slakaðu niður. Endurtaktu 5x. -->Slakar á líkama og róar taugakerfið.


Gangi vel!

 
 
 

Comments


bottom of page