Eftirfylgni skiptir máli
Vinnuheilsa býður fyrirtækjum og stofnunum upp á rafræna eftirfylgni í AVIA.
Eftir fyrirlestur, úttekt eða ráðgjöf getur starfsfólk fengið aðgang að stuttu og hagnýtu fræðsluefni. Þar er hægt að rifja upp lykilatriði og fá áframhaldandi stuðning við að innleiða betri vinnuvenjur.
Hagkvæm leið til að lengja áhrif fræðslunnar
Rafræn eftirfylgni gerir fyrirtækjum og stofnunum kleift að nýta fjárfestingu sína í fræðslu betur. Ekki þarf að kalla allt starfsfólkið saman í hvert sinn sem rifja þarf upp ákveðin atriði. Fræðslan er aðgengileg óháð staðsetningu og vinnutíma og getur einnig nýst starfsfólki sem kemur síðar til starfa.
Þetta hentar sérstaklega vinnustöðum með:
Vaktavinnu
Margar starfsstöðvar
Fjölbreytta starfshópa
Reglulega nýliðun
Þörf fyrir stöðuga fræðslu og eftirfylgni
Samfelld þjónustuleið
AVIA kemur ekki í staðinn fyrir mannlega ráðgjöf eða fræðslu Vinnuheilsu. Kerfið styður við þjónustuna og hjálpar til við að færa þekkinguna úr fyrirlestrasalnum og inn í daglegt vinnulag.
Fagleg fræðsla og ráðgjöf mynda grunninn. Rafræn eftirfylgni hjálpar starfsfólkinu að halda áfram.





Comments