Ekki enn eitt verkefnið á listann, takk!
Vinnan. Heimilið. Ræktin. Og allt hitt. Þegar margir boltar eru á lofti er auðvelt að setja sjálfan sig aftast í röðina.
Byrjum á einhverju litlu.
Áður en þú ferð í næsta verkefni, gefðu þér eina mínútu:
🌿Leggðu frá þér það sem þú ert með í höndunum.
🌿Finndu fæturna á gólfinu, leyfðu öxlunum að síga og andaðu rólega.
🌿Taktu eftir þremur hlutum sem þú sérð.
🌿Þú þarft ekki að klára allt á verkefnalistanum til að leyfa þér smá hlé.

🌿Gangi þér vel og góða VINNUHEILSU 🌿




Comments