ÞEGAR STARFIÐ SNÝST UM AÐ STYÐJA AÐRA – HVERNIG STYÐUR ÞÚ VIÐ ÞIG?
Mannauðsstjórar og stjórnendur eru vanir að vera til staðar fyrir aðra.
Hugleiðing
Kannski var erfitt samtal í vikunni sem þú ert enn að hugsa um. Verkefni sem þú gast ekki leyst. Ákvörðun sem allir verða ekki sáttir við. Eða einfaldlega of margir sem þurftu á þér að halda.
Við tölum mikið um líðan starfsfólks, streitu og heilbrigt vinnuumhverfi. En sjaldnar um vinnuheilsu þeirra sem bera ábyrgðina og eru til staðar fyrir aðra.
Stjórnandinn þarf líka verkfæri
Að hlúa að eigin vinnuheilsu þarf ekki alltaf að vera flókið.
Það getur falist í að þekkja eigin viðvörunarmerki, kunna að setja mörk, greina á milli þess sem þú getur haft áhrif á og þess sem þú þarft að sleppa eða einfaldlega kunna að stoppa í tvær mínútur þegar álagið eykst.
Vinnuheilsa býður upp á fræðslu og hagnýt verkfæri sérstaklega sniðin fyrir mannauðsfólk og stjórnendur, með áherslu á eigin orku, streitu, mörk, ábyrgð og leiðir til að skilja vinnuna eftir í vinnunni.
Markmiðið er einfalt
Verkfæri sem nýtast í raunverulegum vinnudegi, ekki bara góð ráð sem gleymast þegar fyrirlesturinn er búinn.
Og áður en þú lokar tölvunni í dag má kannski spyrja:
Hvað úr þessari vinnuviku þarf ég að taka með mér áfram og hvað má ég skilja eftir hér?

Væri svona fræðsla áhugaverð fyrir þig eða stjórnendahópinn þinn?




Comments