top of page
Search

Þrjár spurningar áður en þú segir já

Sep 28
1 min read

Við segjum oft já af góðum ástæðum.

Við viljum standa okkur, vera hjálpsöm og halda hlutunum gangandi.


En þegar hvert „já“ bætist ofan á það næsta getur verkefnalistinn orðið fullur áður en við áttum okkur á því.


Prófaðu að staldra aðeins við næst þegar nýtt verkefni kemur á borðið og spyrðu sjálfan þig:

🌿 Er nauðsynlegt að þetta sé gert?

🌿 Er nauðsynlegt að ég geri það sjálf/ur?

🌿 Þarf þetta að gerast núna?


Spurningarnar eiga ekki að losa okkur undan ábyrgð.

Þær hjálpa okkur að forgangsraða meðvitað og skapa örlítið svigrúm áður en við svörum sjálfkrafa játandi.


Stundum verður svarið áfram já.

Stundum verður það „ekki núna“ eða „þetta þarf ekki að vera mitt verkefni“.


Skýr mörk þurfa ekki að vera stór eða dramatísk.

Þau geta byrjað á einni einfaldri spurningu og einu meðvitaðra svari.


Ég heiti Ásgerður og er sjúkraþjálfari og stofnandi Vinnuheilsu.

Fylgdu https://www.vinnuheilsa.is/frettir fyrir fleiri hagnýt verkfæri. 🌿

 
 
 

Comments


bottom of page