Confirm domain ownership
top of page
Search

Uppáhaldið mitt í dag er..

..Max-Hydrate Energy!

Nú er ég komin á fullt með að hreyfa mig og hef fundið taktinn í því að gera eitthvað smá á hverjum degi. Loksins, eftir langa, dimma og erfiða fyrstu þrjá mánuði ársins.


Þegar ég geng á fjöll eða tek öfluga æfingu í Hress Hafnarfirði (æfingastöðinni minni) og svitna rækilega þá er uppáhaldið mitt þessa dagana að setja töflu af Max-Hydrate Energy í vatnsbrúsann minn til að tryggja úrvalsmagn af natríum, kalíum, magnesíum og kalsíum – til að forðast vöðvakrampa og vöðvaþreytu.

Auk þess inniheldur taflan 50mg af náttúrulegu koffíni úr Green Tea Extract.


Trace Minerals Max Hydrate freyðitöflurnar innihalda allar mikilvæg steinefnasölt.

Þær koma í þremur útgáfum.

Max Hydrate Endurance - blanda steinefnasalta

Max Hydrate Energy - steinefnasölt auk koffíns úr grænu tei

Max Hydrate Immunity - steinefnasölt auk C vítamíns fyrir öflugra ónæmiskerfi Einnig er að finna Magnesíum freyðitöflur sem eru góðar til að bæta andlegt jafnvægi og vinna gegn streitu.

 
 
 

コメント


bottom of page